- Project Runeberg -  Hvíta Bandið 50 ára 1895-1945 /
31

(1945)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Kristinn Björnsson:

Sjúkrahús Hvítabandsins

Fyrsti sjúklingurinn var lagður inn á
Sjúkrahús Hvitabandsins 20. febrúar 1934
og frá þeim degi má því telja starfsemi
þess. Að vísu hafði áður farið fram
all-mikil undirbúningsstarfsemi eins og vant
er þegar nýtt sjúkrahús er opnað. Síðan
hafa margir sjúklingar átt leið þangað og
þaðan.

Á þeim tæpum 9 árum, sem kvenfélagið
Hvítabandið starfrækti sjúkrahúsið, eða
til ársloka 1942, komu þangað 5278
sjúk-lingar eða 586 á ári að meðaltali. Þessi
tala skiptist svo eftir árum:

1934 komu 519 nýir sjúkl. legudagar 9481

1935 — 618 — — — 13229

1936 — 627 — — — 13257

1937 — 587 — — — 13257

1938 — 469 — — — 14007

1939 — 563 — — — 14128

1940 — 566 — — — 14202

1941 — 621 — — — 14469

1942 — 708 — — — 13657

Meðaltal legudaga á ári þessi ár verður
13298%, sem svarar til 36y2 sjúklings
daglega allt árið og sé fyrsta árinu sleppt
eru 38 sjúkrarúm upptekin að staðaldri
öll árin, enda hefur hver smuga verið
notuð til hins ýtrasta.

Svo var ráð fyrir gert í upphafi af
heilbrigðisstjórninni, að sjúkrahúsið tæki
ekki á móti berklasjúklingum né
sjúk-lingum með næma sjúkdóma og hefur
þess yfirleitt verið gætt ef víst var um
sjúkdómsgreiningu er sjúklingurinn var
lagður inn. Þó hafa fáeinir
berklasjúk-lingar verið teknir fyrir bein tilmæld
berklalækna, en yfirleitt aðeins um
stund-arsakir. Annars hefur sjúkrahúsið verið

starfrækt sem almennt sjúkrahús, en þó
hafa handlæknissjúklingar verið í
all-miklxim meirihluta, 3874 eða rúmlega
73% alls sjúklingafjöldans.

Fer hér á eftir skrá um
handlæknis-sjúklinga eftir aldri og kynferði árin
1934—1942:

Börn Karlar Konur Samtals

1934 49 97 216 362

1935 50 120 297 467

1936 72 128 265 465

1937 58 111 235 397

1938 61 105 246 412

1939 72 155 181 408

1940 99 111 223 433

1941 109 110 186 405

1942 129 130 266 525

Handlæknisaðgerðir hafa þó verið
nokkru fleiri en sjúklingafjöldinn, svo
sem vænta má.

Sjú’krahúsið hefur verið opið öllum
læknum að kalla til að stunda þar
sjúk-linga sína og telst mér svo til að 30
lækn-ar hafi fyrr eð asíðar stundað þar
sjúk-linga. Hefur þetta verið vel þegið af
læknum og sjúklingum þeirra, en haft
hins vegar í för með sér talsverðan
vinnu-og ónæðisauka fyrir starfsfólk
sjúkrahúss-ins eins og nærri má geta. Sjúkrahúsið
hefur átt því að fagna fyrr og síðar að
eiga ágætu hjúkrunarliði á að skipa og
get ég ekki varizt að minnast í því
sam-bandi frk. Elísabetar Guðjohnsen, en hún
hefur verið yfirhjúkrunarkona
sjúkra-hússins að kalla frá byrjun og hefur því
alltaf verið að ’heimi styrkur og sómi.
Aðrar hjúkrunarkonur, sem lengst hafa
starfað við sjúknahúsið eru: Frk. Björg

hvítabandið 1 1

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 08:38:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hvitband50/0033.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free