Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
Og hangsandi biðlund ið einasta er,
sem eg þarf að leggja þar til.
En svona þó gengi nú, varð eg þess var,
við vórum ei sök í því jafnt,
Því ókunnug stúlka sat andspænis mér
og eftirtekt vakti hún samt.
Það leit út sem þekti’ hana karlmaður hver,
hjá konum á vandfýsni bar;
Eg vissi ei, hvort orðstír var orsök til þess
eða að eins að fögur hún var. —
Að grannvöxnu limunum fallega féll
hver felling á dökkleitum kjól
Sem rökkurblár kvöldskuggi um einstaka ösp
með upplituð haustblöð mót sól,
Því æskan var bliknuð, og bláminn sást glögt
í bikar á kinnanna rós;
Á glóhári mjúku var móleitur blær
sem máð væri gyllingin ljós.
Af viðmóti réð ég, hún vissi það sjálf
og vonaði eftir því helzt,
Ið mista hún gæti enn unnið svo upp
að auglýsa djarft það sem hélzt.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>