Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
— Við komum af firnindum, Frakkinn og ég,
vor för var af landssjóði trygð.
Og þrjátíu mílurnar ófarnar enn
við áttum af hundrað í bygð;
En hinir í liðið, svo lítið það var,
á leiðinni bæzt höfðu við
Og ótekin veiði og ófundið gull
var iðn þeirra og framtíðar mið.
En við höfðum »stimpilinn« stjórninni frá —
um »stöðurnar« varð nú ei jafnt.
Í meðvitund vorri, en utan á ei,
það aðalsmark bárum við samt.
En þó að svo væri, við vórum þar nú
á viðlíka skipbroti og þeir:
Að krókna upp í óbygð og keifa o’n í bæ;
en kuldann við óttuðumst meir.
Þótt ferðinni hrylti oss hálfvegis við,
hann hristi af sér Írinn minn þó.
Hvort morgunbæn las hann, er mér ekki ljóst,
en matinn sinn át hann i ró.
Og upp þegar lögðum við, leit hann til mín:
»Að líkindum skár um þig fer
Hjá samlöndu glaðlyndri í Golden í kvöld,
sem góðsöm við ferðamenn er.«
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>